
#603 - Hallalaus fjárlög eða hvað?
Hallalaus fjárlög eða hvað? Hringborð atvinnulífsins: Við hringborðið í dag eru Ragna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar og Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Við fengum þau til að ræða hvers konar signal ríkisstjórnin sendir með hallalausu fjárlagafrumvarpi og hversu miklar líkur séu í raun á hallalausum ríkisrekstri á næsta ári. Viðtalið: Margréti Ormslev Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Ligo, er í viðtalinu og ræðir nýtingu gervigreindar fyrir innviði eins og fasteignir og frárennslislagnir. Hitamælirinn: Í hitamæli viðskiptalífsins fórum við yfir umræðu um samsetningu eignarhalds fyrirtækja í kauphöll Íslands með Herði Ægissyni, ritstjóra Innherja. Við ræðum hvernig sambúðin milli stórra stofnanafjárfesta og einkafjárfesta þurfi að þróast til að stuðla að meiri veltu og aukinni þátttöku nýrra fjárfesta í kauphöllinni. Eitthvað sem er reyndar líka stórt hagsmunamál almennings. ---- Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020. Ræðum það... fjallar vikulega um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Þetta er snarpt videó-hlaðvarp með puttann á púlsi umræðunnar og nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir eru forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum. Stjórnandi er Andrés Jónsson