Skip to content
Artwork for Vörumerki
BusinessEntrepreneurshipMarketing

Vörumerki

Margrét Björk Jónsdóttir

Hlaðvarp fyrir fólk með góðar hugmyndir og stóra drauma!

Langar þig að stofna eigið fyrirtæki, styrkja þitt persónulega vörumerki eða gera eitthvað alveg nýtt? 

Í Vörumerki leiða Margrét Björk og Arna Þorsteins hlustendur inn í heim vörumerkja, sköpunar og frumkvöðlastarfs.

Þær ræða við fólk sem hefur byggt upp eða starfað fyrir sterk vörumerki, þá sem hafa tekið stórar ákvarðanir, gert mistök og lært af þeim. Inn á milli deila þær eigin reynslu og raunveruleikanum á bak við það að taka sénsinn þrátt fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Byrja, og gera það svo vel!

Play
  • 21 episodes
  • Avg 1 hr 15 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • S1 · E1
    Oct 14, 2025 · 1 hr 4 min

    01 | Sesselía Birgisdóttir - Þú sem vörumerki

    Sesselía Birgisdóttir þekkir svo sannarlega sterk vörumerki, hún hefur stýrt markaðsstarfi og stafrænum umbreytingum hjá fyrirtækjum eins og Advania, Högum, Póstinum og Vodafone. Í þessum fyrsta þætti deilir Sesselía því hvernig hún beitti sömu aðferðum til að byggja upp sitt eigið vörumerki og hvernig sú ákvörðun átti eftir að hafa fjölmörg tækifæri í för með sér. 💡 🎙️ Skylduhlustun fyrir þá sem vilja styrkja ímynd sína, auka sýnileika og tengslanet, en fyrst og fremst- skapa ný tækifæri á eigin forsendum! 📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki ♡ Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói.

Showing 21–21 of 21 episodes