
hún hlaðvarp #19 Viktoría Hermannsdóttir
Gestur þáttarins er Viktoría Hermannsdóttir, dagskrárgerðarkona hjá RÚV, mannfræðingur og meistari í hagnýtri menningarmiðlun. Í þættinum tölum við um það hvernig atvinnuspyrjandi er sjálf spurð. Um barn sem fékk frí í skólanum til að fara í jarðarfarir með ömmu sinni og afa, um þrettán ára sölukonu sem var strax komin með sinn eigin kúnnahóp, um skólablað í Breiðholti sem seldi auglýsingar út um allt hverfið, um símtalið sem hún hringdi sjálf komin fimm mánuði á leið, um eitt útvarpsviðtal sem varð að verðlaunum, meistaragráðu og bíómynd, um draumaverkefni sem byrjar þegar hún er 39 ára og um það hvernig kona hættir að bíða eftir að vera uppgötvuð. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó



