Skip to content
Artwork for Krakkaheimskviður
Kids & FamilyNewsSociety & Culture

Krakkaheimskviður

RÚV Hlaðvörp

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.


Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir

Ritstjórn: Birta Björnsdóttir, Karitas M. Bjarkadóttir


Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Play
  • 24 episodes
  • weekly
  • Avg 14 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • S3 · E5
    Saturday · 12 min

    Ný kattategund í fyrsta sinn í heila öld

    Í þessum þætti Krakkaheimkviða kynnumst við nýrri kattartegund, þeirri fyrstu sem finnst í meira en hundrað ár! Við skoðum heimkynnum hans og heyrum af því hvernig hann fannst og vísindamanninum sem rannsakaði hann. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • S3 · E4
    September 26 · 13 min

    Ólympíumótið í skák og Íslendingurinn sem vann Magnus Carlsen

    Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um Ólympíumótið í skák sem lýkur nú um helgina. Vignir Vatnar, stórmeistari í skák og liðsmaður íslenska hópsins í Úsbekistan, er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • S3 · E3
    September 19 · 14 min

    Hvernig breytti 9/11 heiminum?

    Í þessum þætti Krakkaheimskviða minnumst við þess að nýlega voru 25 ár liðin frá mannskæðustu hryðjuverkum sögunnar. Hvað var það sem gerðist 11. september 2001 og hvernig breyttu þessir atburðir heiminum? Fréttamaðurinn fyrrverandi Logi Bergmann Eiðsson er viðmælandi þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • S3 · E2
    September 12 · 15 min

    Nýr kóngur í Noregi

    Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas norsku konungsfjölskylduna. Haraldur fimmti Noregskonungur lést í lok ágúst og á miðvikudaginn í síðustu viku var hann jarðaður. Hver var hann og hver er það sem tekur við? Allt um það í þætti dagsins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • August 29 · 16 min

    SUMAR: Ránið á Louvre

    Í næstu viku hefst ný þáttaröð af Krakkaheimskviðum. Í dag ætla ég þess vegna að rifja upp uppáhaldsfréttina mína frá síðasta vetri, um ránið á Louvre. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • August 22 · 15 min

    SUMAR: Evrópusambandið

    Íslendingar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu núna í lok ágúst um það hvort við viljum skoða inngöngu í Evrópusambandið. Það er því ekki úr vegi að rifja upp umfjöllun frá því í vor um ESB, eftir sögulegar kosningar í Ungverjalandi. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • August 15 · 15 min

    SUMAR: Saga símans

    Vissuð þið að í dag, 16. ágúst, eru nákvæmlega 32 ár frá því að fyrsti snjallsíminn var kynntur til sögunnar? Í mars voru svo 150 ár frá allra fyrsta símtalinu, við rifjum upp þáttinn um sögu símans í dag. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • August 8 · 15 min

    SUMAR: Sólmyrkvi

    Á miðvikudaginn verður almyrkvi á sólu sjáanlegur á stórum hluta Íslands. Stjörnu-Sævar sagði okkur allt um hann í júní. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • August 1 · 13 min

    SUMAR: Aðför gegn transfólki

    Næstu helgi er Reykjavík Pride, Gleðigangan sjálf. Af því tilefni er gott að kynna sér aftur bakslagið sem hefur orðið í réttindum hinsegin fólks, umfjöllun frá því í maí 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • July 25 · 15 min

    SUMAR: Eftirnöfn í Færeyjum

    Í næstu viku - nánar tiltekið 28. og 29. júlí, er þjóðhátíð Færeyinga og því er tilvalið að heyra aftur umfjöllun um eftirnafnahefð Færeyinga frá því í mars 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • July 18 · 14 min

    SUMAR: Umhverfisáhrif gervigreindar

    Í lok mánaðar, 28. júlí, er alþjóðadagur náttúruverndar. Af því tilefni rifjum við upp hver umhverfisáhrif gervigreindar eru í þætti frá því í febrúar 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • July 11 · 15 min

    SUMAR: Pöndur

    Hvers vegna eru pöndur mikilvægar í samskiptum milli landa og hvað er eiginlega dýradiplómasía? Við rifjum upp það sem við lærðum um þessa ofurkrúttlegu sendiherra í vetur í þætti dagsins. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • July 4 · 15 min

    SUMAR: AirBNB-bann

    Sumarið er tími ferðamanna en mörg hafa skoðanir á því hvar og hvernig þeir dvelja á fjölförnum stöðum. Við rifjum upp umfjöllun um AirBNB-bann í Barcelona í þætti dagsins. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • June 27 · 15 min

    SUMAR: Samfélagsmiðlabann í Ástralíu

    Breska þingið tilkynnti það fyrr í mánuðinum að það íhugaði samfélagsmiðlabann fyrir börn undir 16 ára aldri. Lög af sama tagi tóku gildi í Ástralíu í desember, við rifjum upp þáttinn um þau í dag. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • June 20 · 15 min

    SUMAR: Saga Kóreu og K-Pop

    20. júní, var liðið heilt ár frá því að Netflix-myndin K-Pop Demon Hunters kom út. Af því tilefni ætlum við að rifja upp sögu Kóreu og K-Pop frá því í haust. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • S2 · E38
    June 13 · 15 min

    Sögulegur almyrkvi á sólu í sumar

    Í þessum síðasta þætti Krakkaheimskviða fyrir sumarfrí fræðist Karitas um almyrkvann sem verður sýnilegur frá Íslandi í ágúst. Stjörnu-Sævar er gestur þáttarins og segir okkur allt um sólmyrkva. Hvers vegna þarf maður sérstök sólmyrkvagleraugu og hvernig tengist norræn goðafræði sólmyrkvum? Allt um það í þætti dagsins! Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • S2 · E37
    June 6 · 14 min

    Stærsta HM í fótbolta sögunnar

    Í þessum þætti Krakkaheimskviða ræðir Karitas við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur um HM karla í fótbolta, breytingar sem gerðar hafa verið á mótinu, nýliðana og spennandi leiki framundan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • S2 · E36
    May 30 · 13 min

    Breytingar í Hollywood

    Í þessum þætti Krakkaheimskviða eru breytingar í Hollywood í brennidepli. Hvað er samruni og samkeppni? Allt um yfirvofandi kaup Paramount á Warner Bros. í þætti dagsins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  • S2 · E35
    May 23 · 12 min

    Feneyjatvíæringurinn

    Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við á Ítalíu þar sem Feneyjartvíæringurinn fer fram um þessar mundir. Dagskrárgerðarmaðurinn Kristján Guðjónsson veit allt um málið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Showing 1–20 of 24 episodes