Skip to content
Artwork for Fotbolti.net

Fotbolti.net

Fotbolti.net

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Play
  • 74 episodes
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • Sunday · length unknown

    Enski boltinn - Búið spil hjá Carrick

    Manchester United er mikið til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag eftir tvö hræðileg töp í röð. Þetta er búið spil hjá Michael Carrick en hvað tekur við næst? Tottenham virðist þá vera vaknað til lífsins en þeir unnu óvæntan sigur á Brúnni. Getur Liverpool barist um Englandsmeistaratitilinn og hvort er Aston Villa eða Newcastle á betri stað? Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Ólympíufarinn Brynjar Jökull Guðmundsson fóru yfir allt það helsta í Coke stúdíóinu.

  • Saturday · length unknown

    Innkastið - Bestu slúttað með sturlaðri lokaumferð

    KA féll, Aron sló markametið og Lárus Orri var látinn fara frá ÍA. Innkastið eftir lokaumferð Bestu deildarinnar. Takk fyrir tímabilið! Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra í hljóðveri.

  • Saturday · length unknown

    Útvarpsþátturinn - Lífsbaráttu-laugardagur fyrir höfuðstað Norðurlands

    Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var hitað upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í beinni útsendingu og rætt um helstu fótboltafréttir vikunnar. Heyrt var í stuðningsmönnum og þeir fengnir til að meta tímabilið. Seinna í dag verður Innkastið svo í beinni útsendingu á X977, klukkan 18, þar sem umferðin verður gerð upp.

  • Wednesday · length unknown

    Kiddi Jak fer yfir dómaramálin - Hvernig myndi VAR koma inn í Bestu?

    Kristinn Jakobsson, fyrrverandi FIFA-dómari og einn fremsti knattspyrnudómari sem Ísland hefur átt, var gestur í hljóðveri þar sem hann ræddi stöðu dómgæslunnar hér á landi. Kristinn starfar nú sem eftirlitsdómari og veitti hann jafnframt innsýn í það starf.

  • Wednesday · length unknown

    38 umferðir - Engilbert Aron special

    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti í þáttinn á hentugum tíma þar sem hann átti frábæra umferð og fékk heil 97 stig. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 7. umferð, meistaradeildina og lögðu drög að 8. umferð. Einnig kynntu þeir félagar gjafaleik sem þeir eru með í gangi og hlustendur geta tekið þátt í á Instagram. Til mikils að vinna en vinningar að þessu sinni eru 15.000 kr gjafabréf á Matarkjallarann, 2 miðar á Improv Ísland, 2 rútur af Thule, fæðubótarefni frá Ingling og gjafabréf í partípílu á Bullseye. Fresturinn til að gera breytingar rennur út föstudaginn 23. október kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich - Nottingham Forest kl 19:00 sama dag.

  • October 19 · length unknown

    Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla

    Innkastið eftir næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson. Farið er yfir liðna umferð og spáð í spilin fyrir komandi umferð. Þá er sérstakt lokahóf þar sem opinberað er val á liði ársins og bestu mönnum.

  • October 19 · length unknown

    Uppbótartíminn - Meistarar þriðja árið í röð

    Breiðablik er Íslandsmeistari kvenna eftir sigur á Stjörnunni í kvöld, en FH tapaði gegn Þrótti á heimavelli í gær. Blikar hafa núna orðið Íslandsmeistarar þrjú ár í röð, virkilega vel gert hjá Kópavogsfélaginu. Í Uppbótaratímanum fóru Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört yfir leikina í síðustu umferð Bestu deildar kvenna, Íslandsmeistaratitil Blika, íslenska landsliðið og rústið gegn Króatíu og svo slúður.

  • October 18 · length unknown

    Enski boltinn - Best rekna félagið í deildinni?

    Enski boltinn hlaðvarpið með breyttu og fersku sniði á sunnudegi. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Sölvi Haralds fóru yfir helstu sögulínur í enska boltanum. Lisandro Martinez málið, sóknarmenn Liverpool skiluðu, Manchester City vinnur alla leiki þó það sé skuggi þar yfir, Brighton er fáránlega skemmtilegt lið og Fulham vann lífsnauðsynlegan sigur. Í lok þáttarins var þá farið í skemmtilegan leik.

  • October 17 · length unknown

    Útvarpsþátturinn - Spurningar í Bestu og enska hringborðið

    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fyrri hluti þáttarins fer í íslenska boltann, og spurningar fyrir lið Bestu deildarinnar. Valur Páll og Haraldur Örn á völlunum. Þá er rætt um agavandamál íslenska landsliðsins. Enska hringborðið er dregið fram seinni hlutann og gamall vinur þáttarins mætir í heimsókn, Kristján Atli Ragnarsson fer yfir stóru málin í enska boltanum.

  • October 15 · length unknown

    38 umferðir - Er of seint að kaupa De Cuyper?

    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Everton - Chelsea kl 11:30 sama dag.

  • October 13 · length unknown

    Enski boltinn - City á toppnum í storminum og hiti á Carrick

    Enska úrvalsdeildin er aftur farin af stað eftir þriggja vikna landsleikjahlé. Það var nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni. Manchester City fór á Anfield og vann þar 0-3 sigur í skugga þess að hafa verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í landsleikjahléinu. City er á toppnum en það veit enginn hvað gerist í framhaldinu. Það er mikill hiti á Michael Carrick eftir 1-1 jafntefli Manchester United og Tottenham, Jordan Henderson blés til sýningar hjá Chelsea og Arsenal vann endurkomusigur á sprækum Leedsurum. Farið var yfir allt þetta helsta. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Arnór Gauti Ragnarsson eru í þættinum.

  • October 11 · length unknown

    Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?

    Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorrason. Eyjamenn eru fallnir og annað af Akureyrarliðunum mun fylgja, KR-ingar hafa svo gott sem tryggt sér annað sætið og það vantar ekki slúðursögurnar á þessum árstíma.

  • October 10 · length unknown

    Útvarpsþátturinn - Bestu agabrotin og U21 einvígi frá EM

    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðs bar hæst. Besta deildin fer aftur af stað og rýnt er í slúðrið. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA kemur í heimsókn og ræðir um sínar pælingar varðandi umræðuna um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar. Þá mætir Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 landsliðsins, en liðið er einu einvígi gegn Grikklandi frá því að komast á EM.

  • October 9 · length unknown

    Gummi Torfa fer yfir allt sviðið fyrir stórleikinn

    Fram hefur átt mjög gott tímabil, karlalið félagsins verður í Evrópukeppni næsta sumar í fyrsta sinn í rúman áratug og kvennaliðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni þvert á spár. Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Guðmundur Torfason, meðlimur í 19 marka klúbbnum, er formaður fótboltadeildar Fram. Gummi mætti á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi við Sæbjörn Steinke í tilefni af stórleik Fram og KR sem fram fer annað kvöld og góðu tímabili Framara.

  • October 8 · length unknown

    Íslandsmeistarar fara yfir tímabilið

    Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings. Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum undir lok síðasta mánaðar og urðu þar með fyrsta liðið í tæpan áratug sem tekst að verja titilinn. Meðal umræðuefna var árangurinn í deildinni, rígurinn gegn KR og Evrópa.

  • October 7 · length unknown

    38 umferðir - Wildcard og vítamín

    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag.

  • October 6 · length unknown

    Innkastið - Ósáttir en ósigraðir

    Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri. Íslandi mistókst að vinna Eistland en er samt á toppi riðilsins, U21 landsliðið komst í umspil með frábærum lokakafla í riðli sínum og Besta deildin hefst loks að nýju eftir endalausan landsleikjaglugga.

  • October 4 · length unknown

    Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?

    Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar. Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt. Í efri hlutanum var líklega leikur ársins spilaður í dag þegar Þróttur heimsótti Breiðablik. Það er vonin að við fáum úrslitaleik í lokaumferðinni. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir þetta allt saman.

  • October 3 · length unknown

    Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur

    Úvarpsþátturinn Fótbolti.net 3. október. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir það helsta í fótboltanum. Þátturinn er sendur út á leikdegi hjá landsliðinu. Frammistaða Íslands í Þjóðadeildinni er skoðuð og hitað upp fyrir leik gegn Búlgaríu. Þá er farið yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum; mögulegar breytingar á Bestu deildinni, U21 landsliðið, mál Manchester City og fýluna í Ronaldo. Á línunni: Börkur Edvardsson og Benedikt Bóas Hinriksson.

  • October 1 · length unknown

    Hvað verður um Man City?

    Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom í hljóðver og ræddi við Kára Snorrason um stóra Manchester City-málið. Farið var yfir brotin, mögulegar refsingar, áfrýjunina og hvað gæti tekið við.

Showing 1–20 of 74 episodes