Skip to content
Artwork for Eftirmál

Eftirmál

Tal

Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.

Play
  • 31 episodes
  • weekly
  • Avg 56 min
  • Icelandic
Counted on this page — what you have heard stays on this device, so it is not something the list can be paged by.
  • Dec 22, 2025 · 1 hr 1 min

    Raðmorðinginn og íslenska eiginkonan

    Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New Jersey og bíður nú réttahalda vestanhafs. Talið er að hann hafi framið einhver ódæðisverkanna á meðan Ása var í fríi með börn þeirra á Íslandi. Við förum yfir þetta umfangsmikla mál í þættinum og ræðum við skyldmenni Ásu. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -Nettó -NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38 -Eldum Rétt -World Class -Collab Samsetning þáttar: Adelina Antal Klippur í þættinum: Is Rex Heuermann the serial killer behind the Gilgo Beach murders in Long Island? YouTube Gilgo Beach suspect Rex Heuermann’s estranged wife screams at reporters YouTube YouTube The Gilgo Beach Killer: House of Secrets Official Trailer Peacock Original YouTube

  • Dec 8, 2025 · 1 hr 8 min

    Hvarf Lúðvíks Péturssonar í Grindavík

    Í dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á öndinni á meðan fordæmalaus leit fór fram í stórhættulegum aðstæðum. Í þættinum er rætt við dætur Lúðvíks sem vilja endurheimta líkamsleifar föður síns. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38 -Nettó -Eldum Rétt -World Class -Collab

  • Feb 18, 2025 · 45 min

    Braggamálið

    Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL

  • Feb 3, 2025 · 53 min

    Gýgjarhólsmálið

    Í mars 2018 kom upp morðmál á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þegar maður varð bróður sínum að bana með hrottafengnum hætti. Málið lamaði samfélagið í sveitinni og fjölskylda bræðranna sat eftir í sárum. Í þættinum fara börn fórnarlambsins yfir áfallið, baráttuna fyrir dómstólum og hvernig líf þeirra breyttist þennan örlagaríka dag. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL

  • Jan 20, 2025 · 48 min

    Flugslysið í Skerjafirði

    Í ágúst árið 2000 hrapaði lítil flugvél í sjóinn í Skerjafirði í Reykjavík með sex manns innanborðs. Fólkið var á leið heim eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar vélin hætti við lendingu á síðustu stundu. Flugslysið vakti strax upp stórar spurningar og varð að risastóru fréttamáli þar sem aðstandendur fórnarlambanna tóku rannsóknina í eigin hendur til að komast að sannleikanum. Friðrik Þór Guðmundsson, faðir sautján ára drengs sem lést í slysinu, fer yfir málið og lygileg eftirmál þess í þættinum. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL

  • Dec 29, 2024 · 42 min

    Öskjuhlíðarmálið

    Eitt þekktasta sakamál okkar tíma er Öskjuhlíðarmálið eða GAP málið svokallaða. Fá morðmál hafa vakið meiri óhug meðal þjóðarinnar sem hélt niðri í sér andanum á meðan leit stóð yfir af Einari Erni Birgis, farsælum og vinamörgum viðskipta- og íþróttamanni í blóma lífsins. Eftir nokkurra daga leit játaði viðskiptafélagi hans og vinur að hafa myrt hann og komið líkinu fyrir í gjótu á Reykjanesi, en hann hafði sjálfur tekið þátt í leitinni að Einari. Systkini Einars segja okkur frá þessari lífsreynslu og eftirmálum morðsins í þættinum. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL

  • Dec 20, 2024 · 44 min

    Jón stóri

    Jón stóri var á árunum 2009 til 2013 umtalaðasti og umdeildasti maður landsins. Hann lifði og hrærðist í undirheimunum og talaði opnskátt um fíkniefnaneyslu og glæpi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlaviðtölum þar sem allt var látið flakka. Líf hans einkenndist af glamúr og partýstandi en hann átti líka mjög myrkar hliðar. Í Eftirmálum förum við yfir lífshlaup Jóns stóra og ræðum við fyrrum kærustu hans. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL

  • Sep 5, 2024 · 33 min

    Aukaþáttur - Vendingar í máli Söndru Sigrúnar

    Fjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands. Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna málsins. Lögmaðurinn og Margrét Fenton, mamma Söndru Sigrúnar, ræða stöðuna í þættinum.

  • Mar 20, 2024 · 1 hr 19 min

    Búsáhaldabyltingin

    Mótmælin í kjölfar efnahagshrunsins 2008 eiga engan sinn líka í sögunni. Allt byrjaði þetta friðsamlega en mótmælin stigmögnuðust samhliða reiði og ólgu í samfélaginu. Á endanum sauð upp úr og upplausnarástand ríkti á Austurvelli, þar sem eldur logaði víðs vegar, mótmælendur köstuðu skyri, eggjum og grjóti í lögreglumenn og reyndu að brjóta sér leið inn í Alþingishúsið. Stefán Eiríksson, sem var lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins á þessum tíma, rifjar í Eftirmálum upp hvernig var að vera staddur í hringiðunni á þessum fordæmalausu atburðum. Þátturinn er í boði: Nettó World Class Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMÁL Einn, tveir og elda

  • Mar 4, 2024 · 1 hr 21 min

    Rauðagerðismálið

    Nýr veruleiki blasti við í íslensku samfélagi einn sunnudagsmorgun í febrúar 2021 þegar fréttir bárust af kaldrifjuðu morði í Rauðagerði, götu í rólegu fjölskylduhverfi í Reykjavík. Sá myrti var skotinn níu sinnum fyrir utan heimili sitt. Atburðurinn var fordæmalaus, minnti einna helst á aftöku og þótti marka aukna hörku í undirheimum Íslands. Í Eftirmálum förum við yfir atburðarásina í þessu umfangsmikla morðmáli með Birgi Olgeirssyni, fyrrum fréttamanni, sem rannsakaði málið og sat réttarhöldin. Þátturinn er í boði: Nettó World Class Sjöstrand 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMÁL Einn, tveir og elda

  • Feb 20, 2024 · 1 hr 19 min

    Mál Róberts Downey og uppreist æra

    Líklega óraði engan fyrir því að barátta þolenda kynferðisbrotamannsins Roberts Downey fyrir upplýsingum um uppreista æru myndi verða til þess að sprengja ríkisstjórn Íslands haustið 2017, en svo fór. Uppreist æru málið hristi hressilega upp í þjóðinni og óvænta stefnu þegar þegar meðmælabréf með dæmdum barnaníðingum voru gerð opinber. Málið skók þjóðina, stjórnmálin og umræðuna en Sigríður Andersen, sem þá var dómsmálaráðherra, ræðir sína hlið af þessum atburðum í Eftirmálum. Þátturinn er í boði: Nettó World Class Sjöstrand Einn, tveir og elda

Showing 21–31 of 31 episodes