Skip to content
Artwork for Bíóblaður

Bíóblaður

Hafsteinn Sæmundsson

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

Play
  • 20 episodes
  • weekly
  • Avg 2 hr 16 min
  • Icelandic
  • S4 · E388
    September 10 · 2 hr 22 min

    #338 Topp 10 með Snorra Rafni

    Snorri Rafn Frímannsson er ungur leikari og tónlistarmaður. Snorri lék meðal annars eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Berdreymi árið 2022. Snorri kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars ástríðu Snorra á kvikmyndum, hversu mikill Daniel Day-Lewis aðdáandi Snorri er, hvort Stanley Kubrick sé ofmetinn leikstjóri, hversu vanmetin Joker 2 er og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Snorri Rafn eða Snow Raven 06:40 - Leiklist og kvikmyndaáhugi 32:00 - Honorable mentions 36:38 - Capote 40:20 - Phantom Thread 46:33 - There Will Be Blood 54:42 - Joker 1:03:28 - Dr. Strangelove 1:20:38 - Vonarstræti 1:32:55 - Eternal Sunshine of the Spotless Mind 1:42:10 - The Piano Teacher 1:46:44 - Forrest Gump 1:54:10 - Uppáhalds myndin hans Snorra 2:10:17 - Hot takes og grín

  • S4 · E337
    September 2 · 2 hr 47 min

    #337 Topp 10 með Coach Clean

    Hreinn Orri Hreinsson, betur þekktur sem Coach Clean, er fjarþjálfari og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hann kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Snatch sé betri en Lock Stock, hversu mikill Will Smith aðdáandi Orri er, hvort það ætti að gera enn eina Ocean’s Eleven mynd, hvort Heat 2 verði góð, hver er lélegasta Tarantino myndin og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Hvað gerir Coach Clean? 11:41 - Orra gæði 14:51 - Kvikmyndaspjall 24:27 - Honorable mentions og Will Smith 33:38 - Topp 10 listinn 35:17 - Tropic Thunder 49:57 - Snatch 56:17 - Ocean’s Eleven 1:07:11 - The Hateful Eight 1:19:22 - The Rock 1:30:30 - The Departed 1:40:25 - Die Hard with a Vengeance 1:54:04 - The Dark Knight 2:07:13 - Heat 2:21:42 - Uppáhalds myndin hans Orra 2:43:41 - Lokaorð

  • S4 · E336
    August 24 · 2 hr 41 min

    #336 Bransaspjall með Christof Wehmeier

    Christof Wehmeier er sérfræðingur í markaðs- og kynningarmálum og hefur yfir 30 ára reynslu af markaðssetningu kvikmynda. Christof hefur meðal annars séð um kvikmyndamarkaðssetningu hjá Stjörnubíó, Sambíóunum og Skífunni. Frá árunum 2007 til 2025 starfaði hann sem kynningarstjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands þar sem hann kynntist vel innlendri kvikmyndagerð. Christof hefur einnig leikið lítil hlutverk í ýmsum verkefnum og hefur skrifað handrit. Hafsteinn var spenntur að spjalla við hann en í þættinum ræða þeir meðal annars ferilinn hans Christof, bestu Michael Mann myndina, stöðuna á Star Wars í dag, hversu mikil áhrif A.I. mun hafa á bransann, hvort Christopher Nolan sé stærsti leikstjóri heims í dag og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Hver er Christof Wehmeier? 04:41 - Christof og markaðssetning á kvikmyndum 20:53 - Christof, KMÍ og innlend kvikmyndagerð 35:17 - Innlend og erlend kvikmyndagerð á Íslandi 42:11 - Unga kynslóðin í kvikmyndagerð 53:35 - Christopher Nolan 57:20 - Nýjar raddir fyrir unga fólkið 1:00:26 - Christopher Nolan 1:03:43 - Ofurhetjur og Dunesday 1:11:29 - Netflix myndir og streymisveitur 1:21:08 - Er Hollywood á góðum stað í dag? 1:31:27 - Kvikmyndafókus hefur breyst 1:33:53 - Eldri kvikmyndir vs. nýjar 1:41:20 - Norræn kvikmyndagerð 1:48:26 - Star Wars 1:56:39 - Framhaldsmyndir 2:02:26 - Michael Mann 2:06:01 - Handritagerð 2:19:12 - James Bond 2:31:13 - Gervigreind 2:35:45 - Ásgeir Kolbeins fór með rangt mál 2:37:41 - Tom Cruise

  • S4 · E335
    January 6 · 3 hr 25 min

    #335 2025 með Ásgeiri Kolbeins

    Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2025. Strákarnir leggja helst áherslu á stóru kvikmyndirnar sem komu út á árinu en þeir voru sammála um að árið sem slíkt hafi verið fullt af vonbrigðum. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Leonardo DiCaprio hafi staðið sig vel sem aumingi í One Battle After Another, hvort Avatar: Fire and Ash sé besta Avatar myndin, hvort Ballerina hafi gengið vel sem John Wick mynd, hvort Ásgeir gæti sjálfur skrifað betri Jurassic Park mynd en myndirnar sem hafa komið út undanfarin ár, hversu slæmt ár þetta var fyrir Marvel, hvort það sé einhver von fyrir DC heiminn og margt, margt fleira. 00:00 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 00:14 - Intro 00:29 - Ásgeir Kolbeins fær gjöf 03:19 - Avatar: Fire and Ash 23:20 - Var árið gott? 32:42 - One Battle After Another 51:03 - Sinners 1:10:07 - Weapons 1:30:35 - Jurassic World: Rebirth 1:37:51 - Marvel myndir ársins 1:57:50 - Ballerina og Nobody 2 2:24:19 - Grínmyndir ársins 2:39:16 - Mission Impossible: The Final Reckoning 2:55:35 - F1 2:58:36 - Superman 3:12:55 - Sjónvarpsseríur og Alien: Earth

  • S4 · E334
    Dec 21, 2025 · 2 hr 3 min

    #334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni

    Það er komið að úrslitum í fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Kilo og Ísrael unnu Odd og Tóta í undanúrslitunum og Óli og Máni unnu Hugleik Dagsson og Ævar. Í þessum þætti mætast því sterkustu liðin í mótinu, Kilo og Ísrael á móti Óla og Mána. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, löggur og bófa, nörda stuff, bardagastjörnur og margt, margt fleira. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Bíóblaður er jólagjöfin í ár! 00:10 - Intro 00:25 - Jólaþátturinn í ár! 00:48 - Er Die Hard jólamynd? 03:22 - Bíóblaður spurningaspilið er komið í verslanir! 04:35 - Best of the Best úrslitaþáttur 14:48 - Atriði 30:22 - Almennar spurningar 41:48 - Plakatleikur 52:45 - Rétt eða rangt 1:02:19 - Persónur og leikarar 1:19:38 - Valmöguleikar 1:35:34 - Flokkar (Ártöl, Löggur og bófar, Nörda stuff, Bardagastjörnur) 1:57:29 - Sigurvegarar krýndir

  • S4 · E333
    Dec 10, 2025 · 1 hr 49 min

    #333 Avatar: The Way of Water með Jóhanni Leplat

    Í tilefni þess að nú er stutt í að þriðja Avatar myndin verði frumsýnd, þá ákvað Hafsteinn að opna fyrir gamlan áskriftarþátt þar sem hann og Jóhann Leplat Ágústsson, stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn, ræddu Avatar: The Way of Water. Jóhann og Hafsteinn voru ekki sammála um gæði myndarinnar og úr myndaðist skemmtileg umræða. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort biðin hafi verið þess virði, hversu sturlaðar tæknibrellur eru í myndinni, hvort hún sé í rauninni bara endurgerð af fyrstu myndinni og margt, margt fleira.

  • S4 · E332
    Dec 1, 2025 · 1 hr 41 min

    #332 Best of the Best: Hugleikur og Ævar vs. Óli og Máni

    Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Í þessari seinni lotu keppa uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og handritshöfundurinn Jóhann Ævar Grímsson við Bíóblaðurs fastagestina og quiz meistarana Óla Bjarka og Mána Frey. Fyrir rúmu ári síðan keppti Hugleikur við strákana sem endaði með einungis tveggja stiga mun. Óli og Máni unnu þá keppni og nú er komið að stærsta rematch quiz-i ársins. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, James Bond, hryllingsmyndir, klassískar myndir og atriði úr bíómyndum. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 00:38 - Hugleikur er að gefa út spil fyrir jólin 07:10 - Best of the Best 11:40 - Plakatleikur 31:31 - Almennar spurningar 42:11 - Persóna og leikari 55:01 - Rétt eða rangt 1:02:25 - Atriði 1:11:08 - Flokkar (James Bond, Hryllingur, 1984, Bíómix) 1:35:58 - Sigurvegarar krýndir

  • S4 · E331
    Nov 25, 2025 · 1 hr 40 min

    #331 Best of the Best: Oddur og Tóti vs. Kilo og Ísrael

    Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Í þessari fyrstu lotu keppa hlaðvarpsstjórnendurnir Oddur Ævar og Tóti á móti Bíóblaðurs fastagestunum Kilo og Ísrael. Oddur og Tóti eru með kvikmyndahlaðvarpið Tveir á toppnum og eru því vel undirbúnir fyrir þetta mót. Kilo og Ísrael hafa áður keppt á móti hvor öðrum en í þetta skipti snúa þeir bökum saman gegn Oddi og Tóta. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, evrópskar myndir, Clint Eastwood og Jessica Chastain. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 01:58 - Ísrael og Kilo 03:04 - Tveir á toppnum (Oddur og Tóti) 10:40 - Almennar spurningar 16:00 - Plakatleikur 25:19 - Rétt eða rangt 38:09 - Atriði 50:06 - Hugh Jackman eða Jessica Chastain 59:17 - Persónur og leikarar 1:14:32 - Flokkar (Clint Eastwood, DC, Evrópa, Klassískar myndir) 1:36:40 - Sigurvegarar krýndir

  • S4 · E330
    Nov 3, 2025 · 3 hr 38 min

    #330 Nördaspjall með John Inga Matta

    John Ingi Matta hefur verið í kvikmyndabransanum síðan 2008. Hann hefur gert ýmislegt í bransanum en hefur þó undanfarið einbeitt sér að flest öllu sem snertir sjálfar tökuvélarnar. John Ingi hefur meðal annars unnið við Game of Thrones, þrjár Star Wars myndir, tvær Transformers myndir, Sveppamyndirnar og The Marvels. Hafsteinn var spenntur fyrir því að fá John Inga í spjall þar sem John vinnur ekki einungis í bransanum heldur er hann algjört bíónörd. Í þessum risa þætti fara strákarnir um víðan völl en þeir ræða meðal annars bransann, franskar hryllingsmyndir, asískar hasarmyndir, John Woo, Marvel, stöðuna á Star Wars í dag, hvort James Gunn eigi eftir að standa sig vel með DC heiminn, Sinners, Weapons, One Battle After Another og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Samanburður á ólíkum myndum 09:16 - Hver er John Ingi? 16:17 - Íslenski bransinn 24:55 - Hryllingsmyndir 48:40 - The Raid og erlendir aðilar í Hollywood 51:39 - Franskar hryllingsmyndir og A Serbian Film 1:05:25 - Suður-Kóreskar og japanskar myndir 1:18:53 - Tony Jaa og Chow-Yun Fat 1:29:10 - John Wick og Ballerina 1:35:05 - Weapons og Sinners 1:51:04 - One Battle After Another 2:10:46 - Keanu Reeves, John Wick og The Matrix 2:22:55 - Star Wars, Disney og Netflix 2:58:59 - Marvel 3:12:14 - DC 3:27:45 - Ástríða fyrir bíómyndum og gervigreind

  • S4 · E329
    Oct 27, 2025 · 1 hr 25 min

    #329 Horror Quiz: Pétur vs. Jökull

    Hryllingsmyndaaðdáendurnir Pétur Ragnhildarson og Jökull Jónsson eru fastagestir Bíóblaðurs en strákarnir eru vanir að mæta í þáttinn og ræða einhverja hryllingsmyndaseríu. Hafsteinn ákvað að breyta til í þetta skiptið og láta strákana keppa í spurningakeppni! Pétur og Jökull þurfa að svara ýmsum spurningum sem allar eiga það sameiginlegt að tengjast hryllingsmyndum. Spurningaliðirnir eru meðal annars atriði úr myndum, scream queens, alls konar plaköt og almennar spurningar. 00:00 - Intro 00:15 - Pétur og Jökull hittust fyrir utan podcastið 10:17 - Atriði 22:00 - Plakatleikur 28:23 - Almennar spurningar 36:39 - Scream queens 46:54 - Rétt eða rangt 56:01 - Flokkar (Draugagangur, Beittar tennur, Blóðug slóð, Óþekk börn) 1:13:16 - Sigurvegari krýndur 1:17:29 - Hrekkjavöku meðmæli

  • S4 · E328
    Oct 13, 2025 · 1 hr 30 min

    #328 Old School Quiz: Kilo vs. Ísrael

    Ísrael Daníel Hanssen og Kilo eru báðir fastagestir Bíóblaðurs og Hafsteini datt í hug að fá þá til sín til að keppa í spurningakeppni. Þema þáttarins eru 80’s og 90’s kvikmyndir og strákarnir keppa í nokkrum liðum. Í þættinum eru meðal annars Tom Cruise spurningar, strákarnir fá að sjá nokkur plaköt þar sem titilinn vantar og þurfa að fylla í eyðurnar, þeir fá að sjá einn ramma úr bíómynd og þurfa að giska á úr hvaða mynd ramminn er og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 01:37 - Bíóblaður spurningaspil kemur út fyrir jól! 03:07 - Kilo og Ísrael 12:35 - Plakatleikur 25:41 - Valmöguleikar 46:39 - IMDB leikur 56:42 - Atriði 1:12:02 - Flokkar (1999, Tom Cruise, Julia Roberts, 1989) 1:22:00 - Sigurvegari krýndur 1:25:12 - Kilo og Ísrael team up?

  • S4 · E327
    Oct 8, 2025 · 2 hr 8 min

    #327 Dahmer með Kiddu Svarfdal

    Ritstjóri hun.is, Kidda Svarfdal, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti til að ræða hina umdeildu Netflix seríu, Monster: The Jeffrey Dahmer Story. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu erfið serían er, hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þetta, hvort serían fari eftir öllum staðreyndum, hversu frábær Evan Peters er sem Dahmer, hvort það ætti yfirhöfuð að vera að fjalla um svona menn og margt, margt fleira.

  • S4 · E326
    Oct 2, 2025 · 2 hr 19 min

    #326 Bransaspjall með Ólöfu Birnu

    Ólöf Birna Torfadóttir er handritshöfundur og leikstjóri. Hún hefur meðal annars gert kvikmyndirnar Hvernig á að vera klassadrusla sem kom út árið 2021 og Topp 10 möst sem kom út árið 2024. Ólöf kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá ferlinu á bakvið þessar kvikmyndir. Þau ræða einnig hvernig gervigreind mun breyta kvikmyndaiðnaðinum, hversu mikilvægt það er að vera með gott handrit, hvernig Ólöf nálgast handritagerð þegar hún kennir nemum í Kvikmyndaskólanum, hvort sjónvarpsefni sé betra í dag en í gamla daga og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil 02:01 - Handrit skipta máli 15:05 - Framtíð kvikmynda og A.I. 25:07 - Kvikmyndanám og gæði handrita 38:46 - Sjónvarpsþættir 45:49 - Streymisveitur og bíóaðsókn 59:07 - Hvernig á að vera klassa drusla 1:09:35 - Topp 10 möst 1:14:41 - Kvikmyndasjóður 1:28:20 - Genre myndir á Íslandi 1:30:36 - Topp 10 möst 1:50:16 - Grín er ekki að selja 2:06:57 - Kvikmyndasjóður 2:12:06 - Draumaverkefni og lokaorð

  • S4 · E325
    Sep 15, 2025 · 1 hr 48 min

    #325 Grindhouse með Pétri Ragnhildar

    Grindhouse myndin hafði mikil áhrif á kvikmyndaáhugamanninn Pétur Ragnhildarson þegar hún kom út árið 2007. Pétur kíkti til Hafsteins til að ræða þessa áhugaverðu kvikmynd. Strákarnir ræða einnig Quentin Tarantino, Robert Rodriguez, Machete, hvort Grindhouse myndi virka betur í dag, af hverju myndin floppaði á sínum tíma, hvort Tarantino geri nokkurn tímann tíundu myndina sína og margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Pétur er loksins í solo þætti 03:03 - Af hverju Grindhouse? 09:37 - Rodriguez og Tarantino 14:11 - Grindhouse myndir og samband R og T 29:45 - Machete og Planet Terror 1:00:53 - Fake trailerarnir 1:09:23 - Death Proof og Tarantino

  • S4 · E324
    Sep 4, 2025 · 2 hr 56 min

    #324 90’s Gullmolar III með Bjarna Thor

    Kvikmyndaáhugamaðurinn og 90’s sérfræðingurinn Bjarni Thor kíkti til Hafsteins til að ræða nokkra 90’s gullmola. Strákarnir völdu 10 myndir á mann og skiptust á að rökstyðja sitt val. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar The Siege, Cop Land, Red Rock West, Clifford, Split Second, Bordello of Blood, Fair Game og margar fleiri. 00:00 Intro 00:16 - 90’s Gullmolar III 12:16 - My Blue Heaven 1990 25:45 - Dazed and Confused 1993 37:14 - Sneakers 1992 45:26 - Bulletproof 1996 54:39 - Raising Cain 1992 1:01:15 - The Full Monty 1997 1:12:05 - Split Second 1992 1:19:45 - Falling Down 1993 1:27:09 - Leap of Faith 1992 1:36:23 - Clifford 1994 1:43:39 - Red Rock West 1993 1:55:18 - Fair Game 1995 2:00:50 - Judgment Night 1993 2:07:44 - Bordello of Blood 1996 2:13:34 - The Paper 1994 2:17:09 - Fled 1996 2:22:49 - Cop land 1997 2:38:21 - The Siege 1998 2:43:55 - Stir of Echoes 1999 2:47:45 - Kolamolinn hans Hafsteins

  • S4 · E323
    Sep 3, 2025 · 1 hr 44 min

    #323 Bíóspjall með Benjamín Fannari

    Benjamín Fannar útskrifaðist sem leikari árið 2020 frá Kvikmyndaskóla Íslands og þrátt fyrir hæga leiklistarbyrjun þá stefnir hann ótrauður á leiklistarframa. Benjamín kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá náminu og leiklistardraumum. Í þættinum ræða þeir einnig sjónvarpsseríuna The Boys, rithöfundinn Stephen King, Game of Thrones, Harry Potter, Jim Carrey myndir og margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil er jólagjöfin í ár 03:25 - Benjamín og leiklistin 09:21 - Benjamín hefur leikið Jesú 13:19 - Draumahlutverk 15:50 - Jim Carrey 20:09 - Grínmyndir 25:14 - Streymisveitur, Plex og videoleigur 30:12 - Blockbusters 35:35 - Prisoners 40:30 - Marvel og DC 53:40 - Nýlegar bíóferðir 59:17 - Harry Potter 1:07:15 - Sjónvarpsseríur 1:24:59 - Game of Thrones og Stephen King

  • S4 · E322
    Aug 24, 2025 · 2 hr 8 min

    #322 The Infinity Saga: Part II með Degi, Ragga og Ara

    Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar Captain America: Civil War, Spider-Man: Homecoming, Black Panther, Avengers: Infinity War og margar fleiri. 00:00 - Intro 00:43 - Ant-Man 2015 14:49 - Captain America: Civil War 2016 30:52 - Doctor Strange 2016 43:05 - Guardians 2 2017 56:58 - Spiderman: Homecoming 2017 1:09:28 - Thor: Ragnarök 2017 1:18:12 - Black Panther 2018 1:25:27 - Avengers: Infinity War 2018 1:35:42 - Ant-Man and the Wasp 2018 1:38:27 - Captain Marvel 2019 1:47:10 - Avengers: Endgame 2019

  • S4 · E321
    Aug 24, 2025 · 2 hr 53 min

    #321 The Infinity Saga: Part I með Degi, Ragga og Ara

    Það er komið að stærsta Marvel þætti sem Hafsteinn hefur nokkurn tímann gert! Fastagestirnir Ari Ólafs, Raggi Ólafs og Dagur Landvörður kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu 22 MCU myndirnar. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar Iron Man, The Incredible Hulk, The Avengers, Thor, Guardians of the Galaxy og margar fleiri. 00:00 - Rétt MCU röð? 05:16 - Iron Man 2008 32:35 - The Incredible Hulk 2008 49:26 - Iron Man 2 2010 1:03:25 - Thor 2011 1:22:35 - Captain America 2011 1:38:03 - The Avengers 2012 1:54:16 - Iron Man 3 2013 2:05:59 - Thor: The Dark World 2013 2:17:31 - Captain America: The Winter Soldier 2014 2:28:16 - Guardians of the Galaxy 2014 2:40:37 - Avengers: Age of Ultron 2015

  • S4 · E320
    Aug 20, 2025 · 2 hr 36 min

    #320 Topp 10 með Vilhjálmi Þór

    Karate/einkaþjálfarinn Vilhjálmur Þór Þóruson er mikill kvikmyndaáhugamaður með sterkar skoðanir. Hann hefur fylgst með Bíóblaðri í nokkur ár og Hafsteinn var því spenntur að fá hann í heimsókn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars topp 10 listann hans Villa, nokkur “hot takes” sem Villi er með, hvort Snape sé besta Harry Potter persónan, hversu vönduð Snerting er, hvort Marvel séu alveg búnir að missa það og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - NCIS og ótrúlegir hlutir 03:18 - The Amazing Spider-Man 2 05:19 - Villi og karate 14:02 - Eldamennska og kvikmyndir 15:49 - Villi er með hot takes! 31:25 - Snerting 40:39 - The Whale 48:11 - Primal Fear 1:03:08 - Sleepers 1:17:03 - Good Will Hunting 1:23:45 - Warrior 1:32:39 - Harry Potter and the Half-Blood Prince 1:58:41 - Captain America: Civil War 2:10:16 - Under Siege 2:19:05 - Uppáhalds myndin hans Villa

  • S4 · E319
    Jul 15, 2025 · 1 hr 48 min

    #319 Superman 2025 með Gumma Sósu

    Kvikmyndaáhugamaðurinn og DC sérfræðingurinn Gummi Sósa kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu Superman myndina eftir James Gunn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Gunn hafi tekist að gera góða mynd, hvort búningurinn sé flottur, hversu björt DCU framtíðin er, hvort þetta sé besti Lex Luthor sem fólk hefur fengið að sjá, hvort Lois Lane fái nóg að gera í myndinni og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Gummi er DC gaurinn 02:00 - Bíóblaður spurningaspil er væntanlegt fyrir jólin 04:59 - Superman 2025 (SPOILER FREE) 29:27 - Superman 2025 (SPOILER SPJALL) 1:35:00 - DCU framtíðin

Showing 1–20 of 20 episodes